Storkurinn

Storkurinn STORKURINN
We are a local yarn shop with a large selection of yarns from Iceland and all over the world. Við erum í 108 hverfinu við Síðumúla 20.

Við sérhæfum okkur í að þjónusta áhugafólk um hannyrðir, aðallega prjón, hekl, útsaum og bútasaum. Storkurinn er sælkeraverslun allra sem prjóna, hekla, sauma út eða bútasauma. Aðgengi er mjög gott beint inn af götunni. Við bjóðum ykkur ótrúlegt úrval af garni frá Lamana, Rowan, Brooklyn Tweed, Schoppel Wolle, Mohair by Canard, Hedgehog, LITLG, URTH, Noro og fleirum. Einnig bútasaumsefni frá Makeo

wer og Kaffe Fassett. Prjóna frá Addi og Knit Pro, mikið úrval af tölum og hnöppum, bækur um prjón, hekl og bútasaum, útsaumspakka frá Ehrman, prjónatöskur og prjónahirslur. Við höldum námskeið í prjóni og hekli.

SKJÓLSum mynstur veita skjól á meðan önnur þarf að rjúfaSKJÓL er sérhönnuð íslensk prjónauppskrift sem gegnir þreföldu h...
05/06/2026

SKJÓL

Sum mynstur veita skjól á meðan önnur þarf að rjúfa
SKJÓL er sérhönnuð íslensk prjónauppskrift sem gegnir þreföldu hlutverki: fjáröflun, fræðsla og samstaða.
Með hverri lykkju styrkir þú starfsemi Kvennaathvarfsins og sendir skilaboð um að engin kona eigi að standa ein.

Þessi fallega herferð hefur líklega ekki farið fram hjá neinum, og mörg nú þegar byrjuð að fitja upp á þessari skemmtilegu peysu.

Storkurinn styður heils hugar þetta framtak og tekur þátt í að prjóna samstöðu.

Storkurinn ætlar að styrkja Kvennaathvarfið, en 10% af garnkaupum af öllu garni sem keypt er í peysuna rennur þangað.

Þá gildir að keypt sé í alla peysuna á sama tíma og að framvísað sé staðfestingu á að uppskriftin hafi verið keypt. Gildir út júnímánuð.

Uppskriftin er keypt í gegnum heimasíðu Kvennaathvarfsins: https://kvennaathvarf.is/rjufum-mynstrid/

Við höfum tekið saman nokkrar garntegundir sem myndu henta vel í peysuna og hægt er að skoða þær hér:

https://storkurinn.is/rjufum-mynstrid-skjol/

Ef þið verslið í peysuna á heimasíðunni okkar setjið þá skjól í skiðaboðagluggann svo við tökum kvittunina til hliðar og greiðum til Kvennaathverfsins. Enn eru til kaupaukar í netverslun.

❤️

Takk kærlega fyrir komuna á laugardaginn elsku prjónavinkonur okkar! Það var margt um manninn og ótal margar fallegar pe...
01/06/2026

Takk kærlega fyrir komuna á laugardaginn elsku prjónavinkonur okkar!
Það var margt um manninn og ótal margar fallegar peysur sem við fengum að líta augum.

Nú erum við búnar að draga úr leikjunum og vinningshafi í myndahappdrætti er:
Áslaug Kristinsdóttir, klæðist Einarspeysu hönnuð af Vinda Knits.

Vinningshafi í deilingarkeppni er:
, Ástþrúður Sif Sveinsdóttir, hún klæðist Hrím sjali eftir sjálfa sig ásamt Karla Cape eftir Anne Ventzel.

Þær hafa báðar hlotið 25.000kr gjafabréf í Storkinn.

Þið sem ekki komust til okkar á laugardaginn, vegna búsetu eða annarra ástæðna bjóðum við veglegan kaupauka í netverslun meðan birgðir endast. Kaupaukinn bætist sjálfkrafa í körfu þegar verslað er fyrir 15.000kr.

Sjáið allar þessar flottu peysur!

PRJÓNAKAFFI & PEYSUPARTÝ!Við Storkskonur ætlum að fagna prjónasumrinu með p r j ó n a p e y s u p a r t ý i og þér er bo...
28/05/2026

PRJÓNAKAFFI & PEYSUPARTÝ!
Við Storkskonur ætlum að fagna prjónasumrinu með p r j ó n a p e y s u p a r t ý i og þér er boðið!

Tími: Laugard. 30. maí - opið kl. 10-15

Klæðaburður: Handprjónuð peysa (eða önnur prjónaflík).

Dagskrá:
PRJÓNAKAFFI kl. 10-12
Við hefjum daginn á okkar hefðbundna prjónakaffi kl. 10-12, það síðasta fyrir sumarið. Eins og alltaf þá eru allir prjónarar velkomnir.
Komið endilega í peysu sem þið hafið prjónað í vetur - því það er til mikils að vinna (sjá neðar).

PRJÓNAKVISS
Það verður prjónakviss eða barsvar kl. 12 þar sem þið takist á við hannyrðatengdar spurningar og auðvitað eru vinningar í boði fyrir þau sem fá flest rétt svör!

PEYSUPARTÝ kl. 12-15
Okkur langar að sjá allar fallegu peysurnar sem þið hafið prjónað. Komið til okkar í Storkinn í nýjustu eða flottustu peysunum ykkar.

MYNDALEIKIR
Það verður myndakassi á staðnum, þú eða þið takið myndir af ykkur í flottu peysunum og getið fengið þær sendar í símann ykkar.

Það verða tveir myndaleikir yfir daginn:
Myndaleikur 1:
Taktu mynd af þér í peysunni þinni í myndakassanum og skráðu upplýsingar um þig á blað og settu í pott.
Vinningur er 25.000 kr. gjafabréf í Storkinum. Dregið út á mánudaginn.
Myndaleikur 2:
Deildu myndinni sem þú tókst á instagram og/eða facebook með myllumerkinu . Dregið verður úr birtum myndum eftir helgina.
Vinningur er 25.000 kr. gjafabréf í Storkinum. Dregið út á mánudaginn.

GJAFAPOKAR
Það verðar rausnarlegir kaupaukar fyrir 25 fyrstu sem versla fyrir 15.000 kr. eða meira þennan laugardag.

VEITINGAR
Við bjóðum upp á léttar veitingar allan daginn.

Hlökkum til að sjá ykkur 🥳🥳🥳

Já það var alveg rétt!! Nýja garnið sem við vorum að frá er frá Schoppel Wolle 😍 Schoppel Wolle – BRÜDER STÄRKE 6Gróflei...
26/05/2026

Já það var alveg rétt!!
Nýja garnið sem við vorum að frá er frá Schoppel Wolle 😍

Schoppel Wolle – BRÜDER STÄRKE 6

Grófleiki: Smáband / sport
Innihald: 75% ull og 25 % nælon (vistvænt/biodegradeable)
Lengd/þyngd: 133 m/50 g
Prjónar: 3 – 4 mm
Prjónfesta: 22 lykkjur / 30 umf = 10 cm
Þvottur: Ullarvagga, 40°C

Frábær viðbót og litir sem gleðja 🌈

https://storkurinn.is/vara/schoppel-wolle-bruder-starke-6/

gjafahugmyndir fyrir þinn uppáhalds heklara 💐🧶😍1. Heklunálasett frá  2. Let’s crochet blað frá  3. Heklunálasett frá    ...
18/05/2026

gjafahugmyndir fyrir þinn uppáhalds heklara 💐🧶😍

1. Heklunálasett frá
2. Let’s crochet blað frá
3. Heklunálasett frá

🤫leynimynd af nýrri tegund af garni sem kemur bráðum í sölu hjá okkur í Storkinum frá einum af uppáhalds framleiðandanum...
17/05/2026

🤫leynimynd af nýrri tegund af garni sem kemur bráðum í sölu hjá okkur í Storkinum frá einum af uppáhalds framleiðandanum okkar 🌈 ☺️🤫
Hver getur giskað hver framleiðandinn er??

👀

Gleðilegan kosningadag! 🥳opið hjá okkur í dag frá kl 11-15
16/05/2026

Gleðilegan kosningadag! 🥳

opið hjá okkur í dag frá kl 11-15

Garnpælingar fyrir Ballerina Romance Sweater 🧶🧶🧶
11/05/2026

Garnpælingar fyrir Ballerina Romance Sweater 🧶🧶🧶

IVY TOP + TRIO 2Við erum komnar með nýtt garn frá ISAGER, TRIO 2. Trio 2 er yndisleg blanda líni/hör, bómull og lyocell ...
08/05/2026

IVY TOP + TRIO 2

Við erum komnar með nýtt garn frá ISAGER, TRIO 2.
Trio 2 er yndisleg blanda líni/hör, bómull og lyocell (sem er manngerður þráður úr trjákvoðu) . Garnið er frábært í sumarflíkur, einfalt, tvöfalt eða prjónað með annars konar garni. Möguleikarnir eru margir. Litirnir tala við litaúrvalið í öðrum garntegundum frá Isager og því getur verið skemmtilegt að blanda saman tegundum.

Trio 2 er tilvalið í þennan fallega sumarbol frá PetiteKnit sem kemur í stærðum XXS (XS) S (M) L (XL) 2XL (3XL) 4XL (5XL), garnmagn: 250 (250) 250 (250) 300 (300) 350 (350) 400 (450) g Trio 2 by Isager Yarn (50 g = 175 m).
Bolurinn er prjónaður með 2 þráðum og er uppgefið garnmagn heildarmagn.

Skoða Trio 2 hér: https://storkurinn.is/vara/isager-trio-2/
Kaupa uppskrift hér: https://storkurinn.is/vara/petite-knit-uppskrift-ivy-top/

Address

Síðumúli 20
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 11:00 - 17:00
Tuesday 11:00 - 17:00
Wednesday 11:00 - 17:00
Thursday 11:00 - 17:00
Friday 11:00 - 17:00
Saturday 11:00 - 15:00

Telephone

+3545518258

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Storkurinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share