Sólskinsbúðin

Call Directions Contact the business

Sólskinsbúðin Sólskinsbúðin á Flúðum. Matarmarkaður alla daga - Beint frá bónda: grænmeti, kjöt og vörur frá smáframleiðendum.

Brauð, bakkelsi, take-away kaffi og allskonar snarl í boði í bílinn hjá okkur. Beint frá bónda - grænmeti, nautakjöt,hrossabjúgu, ber, silungur, hunang, ábrestir, flatkökur og sultur svo eitthvað sé nefnt.

31/10/2026

Alltaf jafn blómleg og jákvæð sólskins-stemming hjá okkur!

30/10/2026

Hrekkjavöku-vættirnir eru ekki bara komnir til að hrella okkur. Þeir vildu líka bara kíkja inn til okkar í góðan kaffibolla!

Síðustu graskerin okkur nýtast líka vel við tilefnið. Við ræktuðum nefnilega nokkur grasker hérna í gróðurhúsunum okkar með kúrbítnum í sumar og síðustu graskerin njóta sín extra vel í dag til að auglýsa hrekkjavökudrykkinn okkar:

Pumpkin spice latte sem fæst bæði heitur og kaldur.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Halla Sif, eigandi og framkvæmdastjóri Sólskins grænmetis er nýkomin heim frá Róm þar sem hún tók á móti viðurkenningu f...
23/10/2026

Halla Sif, eigandi og framkvæmdastjóri Sólskins grænmetis er nýkomin heim frá Róm þar sem hún tók á móti viðurkenningu frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) sem ein af 100 kvenhetjum heims í landbúnaði og byggðaþróun.

Viðurkenningin var veitt í fyrsta sinn í tilefni af 80 ára afmæli FAO og var Halla tilnefnd fyrir hönd Íslands.

Athöfnin fór fram í höfuðstöðvum FAO í Róm þar sem komu saman konur víðs vegar að úr heiminum sem starfa við landbúnað og að eflingu hans. Það var áhrifamikil upplifun að sjá afrakstur af fjölbreyttri vinnu kvenna við matvælaframleiðslu og landbúnað fá slíka athygli á alþjóðlegum vettvangi þar sem almennt fer fram stefnumótun og ákvarðanataka um matvæla- og landbúnaðarmál.

Við erum ótrúlega stolt af þessari viðurkenningu sem er jafnframt skemmtileg hvatning fyrir okkur öll sem störfum í íslenskum landbúnaði!

15/10/2026

Ein af spurningum sem við höfum fengið mjög reglulega upp á síðkastið er: „Hvenær koma hrossabjúgun aftur?“

Núna gleður okkur að tilkynna að svarið er að þau eru komin! Vonandi gerir eftirvæntingin þau bara enn betri en góðu hrossabjúgun frá Langholtskoti eru aftur komin í búðina til okkar!

Og miðað við hvað margir hafa beðið eftir því… þá er kannski ekki vitlaust að taka nokkra pakka í einu. Bara svona til öryggis ;)

Kíkið endilega við áður en þau klárast aftur! Opið alla daga frá 9:00–17:30.

09/10/2026

Tíminn líður og dagarnir eru að styttast og því er komið að síðustu uppskeru ársins af eggaldini og kúrbít. Með minna sólarljósi og náttúrulegri birtu í gróðurhúsunum verður þetta síðasta uppskeran í bili svo kíktu við og nældu þér í áður en þeir klárast.

Svo biðum við öll spennt eftir hækkandi sól á nýju ári og vonumst eftir uppskeru aftur í mars.

Við erum opin alla daga frá kl. 9:00–17:30.

Allt er vænt sem vel er grænt og þó það sé farið að stytta aðeins daginn þá eigum við enn nóg af fallegu og fersku grænm...
17/09/2026

Allt er vænt sem vel er grænt og þó það sé farið að stytta aðeins daginn þá eigum við enn nóg af fallegu og fersku grænmeti.

En það fylgir þessum árstíma að það er aðeins minna af fólki á ferðinni hérna í kringum okkur svo við ætlum að færa okkur yfir í aðeins styttri vetraropnunartíma.

Frá og með föstudeginum 18 september er opið hjá okkur frá 9.00-17.30 alla daga!

Hlökkum til að sjá ykkur í SólskinsbúðinnI!

Sumarið er farið að síga á seinni endann, en það er þýðir líka að sé hgæt að uppskera sumt að góða sem sem það hefur gef...
19/08/2026

Sumarið er farið að síga á seinni endann, en það er þýðir líka að sé hgæt að uppskera sumt að góða sem sem það hefur gefið okkur! Það er ekki bara kálið sem er í sínu besta formi, loksins er nefnilega komið annað sem við höfum beðið eftir… dásamlega íslenska hunangið frá Mánastaða hunangi í dreifbýli Ölfus. Hrátt og óunnið 🐝🍯 Nú er bara um að gera að njóta þess góða sem íslenska sumarið gefur okkur.

11/08/2026

Við lokum aðeins fyrr miðvikudaginn 12. ágúst kl. 13:00
Starfsfólk Sólskinsbúðarinnar og Sólskins ætlar að taka smá pásu þann dag og nýta tækifærið til að upplifa þennan einstaka sólmyrkvan saman.
Þið eruð samt hjartanlega velkomin til okkar frá kl. 08:00–13:00 eins og venjulega. Við tökum svo glöð á móti ykkur aftur fimmtudaginn 13. ágúst kl. 08:00 🌱

Takk fyrir skilninginn og njótið sólmyrkvans! 🌑🌞

Litríkur og fallegur dagur til að fagna fjölbreytileikanum 🌈Dagur sem er alltaf góð áminning um að það þarf stöðugt að h...
08/08/2026

Litríkur og fallegur dagur til að fagna fjölbreytileikanum 🌈

Dagur sem er alltaf góð áminning um að það þarf stöðugt að halda áfram að standa vörð um réttindi, virðingu og stöðu allra í samfélaginu.

Gleðilega Hinsegin daga! 🏳️‍🌈🍓🍅🥒

Nýjustu sumardrykkirnir okkar! Gúrku-kaffi.Djók.... það eru engar gúrkur í þessu, þetta er bara frískandi.Matcha með kók...
31/07/2026

Nýjustu sumardrykkirnir okkar! Gúrku-kaffi.
Djók.... það eru engar gúrkur í þessu, þetta er bara frískandi.
Matcha með kókosvatni, matcha latté og líka jarðarberja-matcha latté með heimagerðu jarðarberjasýrópi 🥥🍵🍓

Address

Melar
Hruni
845

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:30
Tuesday 09:00 - 17:30
Wednesday 09:00 - 17:30
Thursday 09:00 - 17:30
Friday 09:00 - 17:30
Saturday 09:00 - 17:30
Sunday 09:00 - 17:30

Telephone

+3546626693

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sólskinsbúðin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Sólskinsbúðin:

Shortcuts

Share

Category

Nearby grocery stores